Viðbætur við I. viðauka við EES-samninginn

Föstudaginn 04. apríl 1997, kl. 12:54:03 (5019)

1997-04-04 12:54:03# 121. lþ. 99.12 fundur 480. mál: #A viðbætur við I. viðauka við EES-samninginn# þál., SvG (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 99. fundur

[12:54]

Svavar Gestsson (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir þessar undirtektir og vil segja frá því að í framhaldi af þeim mun ég beita mér fyrir því, að svo miklu leyti sem það stendur í mínu valdi, að koma þessum umræðum á framfæri við forsn. þannig að hún geti farið yfir þær ábendingar sem hér hafa komið fram.