Menntamálaráðherra (Björn Bjarnason):
Herra forseti. Ég þakka þessar málefnalegu umræður um frv. Það er ljóst að þingmenn hafa þegar kynnt sér einstök atriði í frv. og ég vænti þess að tími vinnist til að ljúka málinu, helst á þessu þingi í vor. Málið er lagt fram innan þeirra marka sem mælt er fyrir um í þingsköpum og þau gera ráð fyrir því að menn geti tekið efnislega afstöðu til þeirra mála sem koma fram á þeim rétta tíma. Ef ekki, þá nær það ekki lengra. Ég held að í háskólasamfélaginu vænti menn þess að frv. nái fram að ganga. Þótt frv. sé samið í ráðuneytinu þá gefur það alls ekki rétta mynd að leggja það þannig upp að það hafi verið gert í einhverjum felum eða með einhverri leynd. Lokavinnan fór þar fram en málið hefur verið rætt mjög víða og grunnhugmyndirnar ræddar mjög víða og enginn ágreiningur er um þær í sjálfu sér.
Það sem segir um skipan manna í háskólaráð t.d. er beinlínis tekið upp úr skýrslu um framtíð Háskóla Íslands þar sem sátu allir helstu sérfræðingar háskólans í málefnum stjórnsýslu og stöðu háskólans í þjóðfélaginu þannig að það er ekkert í þessu frv. sem á að koma þeim á óvart sem best þekkja til málsins.
Varðandi þá athugasemd að ráðherra skipi einn mann í dómnefnd þá held ég að það sé sá varnagli sem er minnstur í því að einhver annar komi þó að í öllum málum en menn úr háskólasamfélaginu sjálfu og það sé til þess fallið að tryggja góða málsmeðferð þó að einhverjir komi utan að inn í slíkar nefndir. Ef það er einhver vandi sem við stöndum frammi fyrir öðrum brýnni í háskólastarfinu þá er það sú staðreynd að stjórnsýslureglurnar eru allt of óljósar miðað við þann mikla mannfjölda sem starfar í skólunum. Þetta frv. og þær reglur sem við erum að móta í því fullnægja öllum kröfum um stjórnsýslu og rétta stjórnsýsluhætti um þessar miklu stofnanir. Þess vegna hvet ég til þess að frv. verði samþykkt og afgreitt þannig að tekinn verði af vafi um ýmis grundvallarmál sem við erum að fjalla um og snerta hagsmuni fjölda fólks.