Árni R. Árnason (andsvar):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. utanrrh. þetta svar. Mitt álit er ekki það að íslensk stjórnvöld hafi gert minna en í þeirra valdi stóð til stuðnings við Eystrasaltsríkin heldur að ég hefði gjarnan viljað sjá að möguleiki þeirra væri í dag metinn meiri en hægt er að leggja mat á. Ég er algjörlega sáttur við gerðir ráðherrans og þau ummæli sem hann hefur látið falla. Við styðjum Eystrasaltsríkin til að komast í betra og öruggara samstarf við Vesturlönd og ekki síst við okkur sem búum á Norðurlöndum.