Þátttaka Íslands í Alþjóðahvalveiðiráðinu

Fimmtudaginn 17. apríl 1997, kl. 18:36:08 (5395)

1997-04-17 18:36:08# 121. lþ. 105.5 fundur 411. mál: #A þátttaka Íslands í Alþjóðahvalveiðiráðinu# þál., sjútvrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 105. fundur

[18:36]

Sjávarútvegsráðherra (Þorsteinn Pálsson) (andsvar):

Herra forseti. Það er óþarfi að endurtaka ræðuna um skýrsluna. Ég hef þegar greint frá því nokkrum sinnum hvernig staðið hefur verið að verki í því efni. Skýrslan verður birt þegar umfjöllun um hana er lokið í ríkisstjórn og það verður alveg á næstunni. Ég á ekki von á því að hv. 15. þm. Reykv. né aðrir hrökkvi neitt við þegar þeir lesa skýrsluna eða að hún komi þeim á óvart.