Breyting á lögum um tekjuskatt og eignarskatt

Föstudaginn 18. apríl 1997, kl. 10:42:00 (5401)

1997-04-18 10:42:00# 121. lþ. 106.92 fundur 293#B breyting á lögum um tekjuskatt og eignarskatt# (aths. um störf þingsins), Forseti GÁ
[prenta uppsett í dálka] 106. fundur

[10:42]

Forseti (Guðni Ágústsson):

Vegna þessara ummæla getur forseti upplýst að forseti Alþingis, Ólafur G. Einarsson, hefur sent þau skilaboð að formenn þingflokka séu boðaðir til fundar kl. 11.45 ef það mætti verða til þess að stytta þessa umræðu. Þar koma þingmenn sjónarmiðum sínum á framfæri og farið verður yfir þetta mál.