Skyldutrygging lífeyrisréttinda

Föstudaginn 18. apríl 1997, kl. 17:56:16 (5479)

1997-04-18 17:56:16# 121. lþ. 106.8 fundur 530. mál: #A skyldutrygging lífeyrisréttinda# (heildarlög) frv., Forseti ÓE
[prenta uppsett í dálka] 106. fundur

[17:56]

Forseti (Ólafur G. Einarsson):

Forseti er tilbúinn til að kanna það, en eftir því sem hann best man, þá er hér ekki um sambærileg tilvik að ræða. Hann man þó ekki nógu glöggt það mál sem hv. þm. er að vísa til, minnir að það hafi verið varðandi bankamál. (ÁE: Það er bankamál, já.) Já. Forseti sá ekki við skjótan yfirlestur að þessar fyrirspurnir vörðuðu sérstaklega það mál sem hér er til umræðu og væri til þess að spilla fyrir að þær væru leyfðar.