Samgönguráðherra (Halldór Blöndal) (andsvar):
Herra forseti. Hv. þm. hefur ugglaust mismælt sig eftir því sem segir nú í sinni fyrri ræðu því hann sagði orðrétt ,,hvað hafa aðrar hafnir til saka unnið á næstu fjórum árum`` þegar hann var að tala um að ríkissjóður yrði að standa skil á 700 millj. kr. á næstu fjórum árum til Grindavíkurhafnar. Nú er hér líka um misskilning að ræða og ekkert við því að segja. Það sem gert er ráð fyrir er að ljúka við dýpkunina á árunum 2001--2002 eins og þetta er hugsað og talið er að það muni kosta 350 millj. kr. Það liggur á hinn bóginn ekki fyrir hver prósentan verður og það verður auðvitað að taka ákvarðanir um það núna við meðferð málsins.
Við skulum ekki gleyma því að þessi innsigling er allrosaleg svo ekki sé nú fastar að orði kveðið og miklir sjóhundar bæði nyrðra og í Vestmannaeyjum hafa lýst skoðunum sínum á því hvernig sé að fara þangað inn í sumum veðrum og hafa haft orð á að þeir mundu ekki leggja í en sem Grindvíkingar láta ekki á sig fá að gera. Þannig að við erum að ráðast þarna til atlögu við eina hættulegustu og kannski hættulegustu höfn landsins.
Ég vil líka segja að þess eru mörg dæmi að mikil verkefni hafa verið tekin fyrir í hafnamálum og háar fjárhæðir hafa runnið til einstakra staða --- kannski í nokkur ár. Það voru landshafnir á sínum tíma, eins og hv. þm. er kunnugt. Bolungarvík þótti nú einu sinni þung. Við getum talað um Vestmannaeyjar, ætli það kosti ekki a.m.k. um hálfan milljarð að gera við þá viðlegukanta sem þar eru nú orðnir mjög lélegir og fyrirsjáanlegt er á næstu árum, og þar fram eftir götunum. Við getum því alltaf búist við því að þurfa að taka duglega til hendinni í einstökum höfnum.