Ágúst Einarsson:
Herra forseti. Ég tel að hlutafélag sé eðlilegt réttarform í atvinnulífinu hvort sem ríkið á allt hlutafé, hluta þess eða ekkert. Það er mjög brýnt og löngu tímabært að breyta Landsbanka Íslands og Búnaðarbanka Íslands í hlutafélög eins og þessi grein frv. gerir ráð fyrir. Þetta er eðlileg og nauðsynleg formbreyting sem hér er lögð til. Ég segi já.