Stofnun hlutafélaga um Landsbanka Íslands og Búnaðarbanka Íslands

Þriðjudaginn 22. apríl 1997, kl. 14:00:10 (5594)

1997-04-22 14:00:10# 121. lþ. 109.4 fundur 409. mál: #A stofnun hlutafélaga um Landsbanka Íslands og Búnaðarbanka Íslands# frv., ÖJ (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 109. fundur

[14:00]

Ögmundur Jónasson:

Hæstv. forseti. Hér er gert ráð fyrir því að starfsmenn geti fylgst með og haft áhrif á allan gang mála við breytingu ríkisbankanna í hlutafélög. Afstaða ríkisstjórnarinnar til atvinnulýðræðis og áhrifa starfsfólks kemur mér ekki á óvart. En það er mjög mikilvægt að lýðum verði ljós afstaða alþingismanna almennt við afgreiðslu þessarar lagagreinar því að hún snertir sjálfan grundvöll atvinnulýðræðis. Ég segi já.