Fjárfestingarbanki atvinnulífsins hf.

Þriðjudaginn 22. apríl 1997, kl. 18:41:19 (5645)

1997-04-22 18:41:19# 121. lþ. 109.21 fundur 408. mál: #A Fjárfestingarbanki atvinnulífsins hf.# frv., SvG (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 109. fundur

[18:41]

Svavar Gestsson (andsvar):

Herra forseti. Í fyrsta lagi liggur fyrir hæstaréttardómur um að þál. eru lítils virði. Í öðru lagi bendi ég hv. þm. á að þessi þáltill. hefur enn ekki séð dagsins ljós á Alþingi. Þannig að ég held að hv. þm. hafi því miður verið plataður í þetta skipti í sambandi við Landsvirkjunarfrumvarpið.