Sigríður Jóhannesdóttir:
Hæstv. forseti. Með samþykkt 9. gr. frv. er afnumið það sem áður hefur verið lágmarksframlag til almenningsbókasafna í landinu. Ég tel að samþykkt þessarar greinar eins og hún liggur hér fyrir sé hættuleg litlum söfnum. Það hefur reynst vera þannig að það er erfitt að sækja þær fjárveitingar sem þau þó hafa átt rétt á samkvæmt lögum og ég óttast að það verði enn erfiðara nú þegar það er ekki lengur fastbundið í lögum. Ég greiði ekki atkvæði um þessa grein.