Helgidagafriður

Mánudaginn 05. maí 1997, kl. 18:04:05 (5852)

1997-05-05 18:04:05# 121. lþ. 116.9 fundur 31. mál: #A helgidagafriður# (heildarlög) frv., HjÁ (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 116. fundur

[18:04]

Hjálmar Árnason:

Virðulegi forseti. Afar sjaldan greinir mig á við minn ágæta hv. þingflokksformann og jafnvel enn sjaldnar við hv. þm. og félaga minn, Guðna Ágústsson, en það hefur gerst nú. Ég hef komist að þeirri niðurstöðu eins og margir aðrir að föstudeginum langa ljúki kl. 12 á miðnætti og því segi ég já.