Tryggingasjóður sjálfstætt starfandi einstaklinga

Mánudaginn 05. maí 1997, kl. 18:43:58 (5860)

1997-05-05 18:43:58# 121. lþ. 116.3 fundur 237. mál: #A Tryggingasjóður sjálfstætt starfandi einstaklinga# frv., SvG (um atkvæðagreiðslu)
[prenta uppsett í dálka] 116. fundur

[18:43]

Svavar Gestsson (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég vil ekki bæta neinu við það sem hv. 12. þm. Reykv. Bryndís Hlöðversdóttir sagði hér fyrir hönd okkar alþýðubandalagsmanna og óháðra um þetta mál og stöðu þess og efni en ég kvaddi mér hér hins vegar hljóðs til að þakka hæstv. forseta fyrir að bregðast við þeim óskum sem hér komu fram. Ég tel að það sé mikilvægt að það náist gott samstarf með þinginu og forseta, sérstaklega í aðdraganda síðustu lotunnar fyrir þingfrestun. Þannig að ég kvaddi mér eingöngu hljóðs til þess að þakka hæstv. forseta fyrir viðbrögð hans.