Einkahlutafélög

Þriðjudaginn 06. maí 1997, kl. 15:31:28 (5897)

1997-05-06 15:31:28# 121. lþ. 117.7 fundur 505. mál: #A einkahlutafélög# (hlutafélagaskrá) frv., Frsm. VE (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 117. fundur

[15:31]

Frsm. efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Egilsson):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti frá efh.- og viðskn. um frv. til laga um breytingu á lögum nr. 138/1994, um einkahlutafélög. Brtt. sem hér er lögð til er efnislega samhljóða þeirri brtt. sem lögð var til vegna frv. um breytingu á lögum um hlutafélög sem hér liggur fyrir. Ég tel ekki ástæðu til að orðlengja málið frekar.