Úrbætur í öryggismálum sjómanna

Miðvikudaginn 07. maí 1997, kl. 14:07:30 (5950)

1997-05-07 14:07:30# 121. lþ. 118.4 fundur 416. mál: #A úrbætur í öryggismálum sjómanna# fsp. (til munnl.) frá samgrh., samgrh. (um fundarstjórn)
[prenta uppsett í dálka] 118. fundur

[14:07]

Samgönguráðherra (Halldór Blöndal) (um fundarstjórn):

Herra forseti. Það hefur þegar hafist umræða um þessa fyrirspurn. Ef hv. þm. óskaði eftir því að draga fyrirspurnina til baka bar honum að gera það áður en umræða hófst um fyrirspurnina. Með því að hv. þm. hefur þegar hafið framsögu fyrir fyrirspurninni, þá óska ég eftir því að fá að nota hinn þinglega rétt minn sem ég hef til þess að svara fyrirspurninni.