Kristín Ástgeirsdóttir (andsvar):
Hæstv. forseti. Ef það er svo að fjárframlagið er ákveðið á fjárlögum, var þá ekki fyrirséð að þessi sjóður þurfti meira fjármagn eða lá það þá þegar fyrir við vinnslu fjárlaga að meiningin væri að skera þarna niður. Hafi svo verið þá harma ég það. Við erum búin tala um það hér árum saman að það þurfi að efla menntun og ekki hvað síst starfsmenntun og það á auðvitað við um presta eins og ýmsar aðrar stéttir. Ég ítreka enn og aftur að ég harma mjög að það skuli vera meiningin að skera niður þessa starfsþjálfun.