Skipan prestakalla og prófastsdæma

Föstudaginn 09. maí 1997, kl. 15:03:11 (6021)

1997-05-09 15:03:11# 121. lþ. 120.12 fundur 591. mál: #A skipan prestakalla og prófastsdæma# frv., Frsm. SP (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 120. fundur

[15:03]

Frsm. (Sólveig Pétursdóttir) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég hygg að það liggi nú í augum uppi þar sem hér er um tiltölulega nýtt íbúðahverfi að ræða og stöðugt eykst byggð og fjölgar íbúum. Þar af leiðandi er mikið um ungt fólk með börn og því gerum við ráð fyrir að það sé enn þá meiri og margvíslegri þörf fyrir þjónustu presta.