Skipan prestakalla og prófastsdæma

Föstudaginn 09. maí 1997, kl. 15:32:47 (6033)

1997-05-09 15:32:47# 121. lþ. 120.12 fundur 591. mál: #A skipan prestakalla og prófastsdæma# frv., KHG (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 120. fundur

[15:32]

Kristinn H. Gunnarsson (andsvar):

Herra forseti. Það er ekki miklu við þetta að bæta. Þessi sumarhúsa- og sögustaðarök eru auðvitað á sínum stað. Ég hef komið á framfæri mínu sjónarmiði um þau. En er það ekki rétt munað hjá mér, og nú spyr ég hv. þm. sem ég hygg að sé kunnugur í efh.- og viðskn., að prestar verði skemmst ráðnir til fimm ára?