Áhrif breyttra hlutfalla aldurshópa eftir árið 2010

Mánudaginn 12. maí 1997, kl. 21:28:52 (6172)

1997-05-12 21:28:52# 121. lþ. 122.27 fundur 315. mál: #A áhrif breyttra hlutfalla aldurshópa eftir árið 2010# þál., Flm. ÍGP (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 122. fundur

[21:28]

Flm. (Ísólfur Gylfi Pálmason):

Herra forseti. Ég mæli fyrir tillögu um könnun á áhrifum breyttra hlutfalla aldurshópa eftir árið 2010. Flutningsmenn auk mín eru Gunnlaugur M. Sigmundsson, Ólafur Örn Haraldsson, Hjálmar Árnason og Magnús Stefánsson. Þáltill. er eftirfarandi:

,,Alþingi skorar á ríkisstjórnina að koma á fót vinnuhópi sérfræðinga sem kanni áhrif fyrirsjáanlegra breytinga á aldurssamsetningu þjóðarinnar eftir árið 2010 á eftirlauna- og lífeyrismál og á heilbrigðiskerfið. Nefndin skili áliti innan árs.``

Frá árinu 1970 til 1995 fjölgaði Íslendingum 65 ára og eldri úr 5,9% þjóðarinnar í 11,3%. 1970 voru íbúar landsins um 205 þús., þar af íbúar sem voru 65 ára og eldri 18.100. Árið 1995 voru íbúar landsins 268 þús., þar af íbúar sem voru 65 ára og eldri 30.540 Í spá, sem gerð hefur verið um hlutfall þessa aldurshóps til ársins 2030, kemur fram að veruleg fjölgun verður frá árinu 2010 og árið 2030 verður þetta hlutfall orðið 19%. Spá Hagstofu Íslands fyrir árið 2030 gerir ráð fyrir að íbúar þjóðarinnar verði þá um 320 þúsund, þar af íbúar sem eru 65 ára og eldri 60.377. Þessi fjölgun hefur miklar þjóðfélagsbreytingar í för með sér. Ætla má að kostnaður heilbrigðiskerfisins aukist verulega og útgjöld vegna eftirlauna og lífeyris hækki umtalsvert. Þetta leiðir til þess að færri vinnandi hendur standa undir velferðarkerfinu.

Um leið og við gleðjumst yfir því að sífellt fleiri ná háum aldri vegna betri aðbúnaðar og framfara í læknavísindum er umræðan nauðsynleg um breytingu á aldurssamsetningu þjóðarinnar og hvernig við eigum að mæta þessari þróun þegar horft er til framtíðar. Enginn má misskilja þessa þáltill. okkar. Við erum alls ekki að hnýta í aldraða. Síður en svo. Flestir eiga vonandi fyrir höndum að ná háum aldri. Það á væntanlega við um okkur sem í þessum þingsal sitjum eins og aðra þegna þessa lands. Við viljum tryggja að við megum áframhaldandi búa við eitt besta heilbrigðis- og tryggingakerfi í veröldinni.

Umræðan um framtíðina þarf að miða að því að leita að sameiginlegum lausnum eins og fjölmargar aðrar þjóðir hafa reynt að gera, enda er hér ekki um séríslenskt málefni að ræða heldur málefni sem önnur vestræn ríki hafa skoðað. Það versta er að gera ekki neitt af því að við höldum að við getum ekkert gert.

Sú staðreynd blasir við meðal margra auðugra þjóða að þeir sem komast á eftirlaunaaldur 65 ára geta búist við að lifa áfram í 15--20 ár. Ef heilsan er í lagi er oft og tíðum um skemmtileg og notaleg ár að ræða og við eigum að kappkosta að skapa öldruðum áhyggjulaust ævikvöld. Þess eru sem betur fer mörg dæmi hér á landi að aldraðir lifi góðu lífi og við viljum tryggja að áframhald verði á því.

Eins og horfur eru nú í flestum vestrænum löndum mun háöldruðum fjölga gífurlega á næstu árum og áratugum. Af þessum sökum mun kostnaður þjóðfélagsins eðlilega aukast í sambandi við umönnun og þjónustu við aldraða. Nauðsynlegt er að byggja upp samfélag sem eyðir óvissu og eykur öryggi þessara aldurshópa.

Á síðari hluta þessarar aldar hefur verið stefnt að því að lækka eftirlaunaaldurinn og oft talið eftirsóknarvert að komast á eftirlaun. Á næstu 30--40 árum munu hlutföll aldurshópa breytast æ meir sökum hærri lífaldurs og færri barnsfæðinga. Ekki verður undan því vikist að skoða áhrif þess á eftirlauna- og heilbrigðiskerfið. Reiknað hefur verið út í erlendum rannsóknum að árið 2030 geti aldurssamsetningin orðið þannig í iðnvæddum ríkjum að aðeins verði tveir vinnandi menn fyrir hvern eftirlaunaþega. Þetta getur leitt til þess aðaldurshópar komi til með að takast á um fjármagn og öll fjármögnun félagslegrar aðstoðar verði erfið.

Þegar þess er gætt að íbúar auðugra landa lifa nú 20--30 árum lengur en fyrir einni öld verður að huga að breytingum á lífeyris- og heilbrigðismálum langt fram í tímann, en forsendan fyrir því að hægt sé að sjá áhrifin fyrir. Því er lagt til í þáltill. þessari að Alþingi skori á ríkisstjórnina að koma á fót vinnuhópi sem kanni þessi mál og eins og fyrrv. forseti Íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, orðaði í ræðu ekki alls fyrir löngu: ,,Enginn getur séð fyrir framtíðina en saman getum við haft hönd á stýri fyrir framtíðina.``