Opinber fjölskyldustefna

Mánudaginn 12. maí 1997, kl. 23:48:55 (6200)

1997-05-12 23:48:55# 121. lþ. 122.25 fundur 72. mál: #A opinber fjölskyldustefna# þál., ÖS (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 122. fundur

[23:48]

Össur Skarphéðinsson (andsvar):

Herra forseti. Hv. þm. er vel vinnandi og kemur miklu í verk. Hann er afkastamikill. En af ræðu hans er ekki hægt annað en draga þá ályktun að hann sé að halda því fram að fyrst hann er einn þingmanna Sjálfstfl. hér, þá hljóti hinir 25 að hanga á skrifstofum sínum og horfa á þessar umræður í sjónvarpinu. Að sjálfsögðu trúir því ekki nokkur einasti maður.