Ágúst Einarsson:
Herra forseti. Bankamálið er nú að koma í heild sinni til lokaafgreiðslu. Aðaltillaga frv. er að breyta Landsbanka Íslands og Búnaðarbanka Íslands í hlutafélög. Að okkar mati hefði útfærslan þurft að vera allt önnur en gert er ráð fyrir í þessu frv. Fjölmargar brtt. frá okkur voru felldar hér við umræður. Þrátt fyrir það er brýnt að breyta ríkisviðskiptabönkunum í hlutafélög og ég tel það vera framfararspor í íslensku atvinnulífi. Ég greiði því málinu atkvæði við lokaafgreiðslu þess.