Frsm. efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Egilsson):
Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir nál. um tillögu til þál. um verðbólgureikningsskil. Nefndin hefur fjallað um þetta mál og er sammála um að gera tillögu um að það verði samþykkt með breytingum, þ.e. að breyta um ráðherra þannig að það sé fjmrh. sem hafi málið á sínu forræði enda heyri þessi mál undir hann. Og enn fremur að síðari málsliður 3. mgr. tillögunnar falli brott.