Vörugjald af ökutækjum

Þriðjudaginn 13. maí 1997, kl. 11:32:29 (6259)

1997-05-13 11:32:29# 121. lþ. 123.34 fundur 549. mál: #A vörugjald af ökutækjum# (vöruflutningar) frv., SvG
[prenta uppsett í dálka] 123. fundur

[11:32]

Svavar Gestsson:

Virðulegur forseti. Ég átti mjög erfitt með að átta mig á málinu eftir framsögu hv. þm. Ég er sjálfsagt sá eini sem þannig háttar til um. Það er spurning hvort ekki er nauðsynlegt að gera hlé á þessu máli þannig að það gefist kostur á að athuga hvaða afleiðingar það hefur í för með sér í verðlagi á bifreiðum og fyrir afkomu ríkissjóðs. Ég nefni það við hæstv. forseta, hvort hugsanlegt væri að meðferð þessa máls yrði frestað þar til kostur gefst á því að fara aðeins betur yfir málið.