Frsm. allshn. (Sólveig Pétursdóttir):
Virðulegur forseti. Hv. þm. hlýtur að taka undir með mér í því að það er búið að vera óvanalega mikið vinnuálag í allshn. og mikill fjöldi af málum. Ég er ekki með hér, virðulegur forseti, nákvæmar tölur um mál sem hafa verið afgreidd úr nefndinni en ég get nefnt sem dæmi um þingmannamál sem hafa verið tekin út samkvæmt yfirliti hér, þ.e. kosningar til Alþingis, lögræðislög, eins og hv. þm. benti á áðan, sem eru tekin sérstaklega inn í stjfrv., umferðarlög, þ.e. hlífðarhjálmar fyrir hjólreiðar, hjúskaparlög, ellilífeyrisréttindi, umboðsmaður Alþingis og áætlun um afnám ofbeldis gagnvart konum, sem er næsta mál á dagskrá, svo nokkur mál séu talin upp. Þetta eru þingmannamál.