Lögræðislög

Þriðjudaginn 13. maí 1997, kl. 17:39:04 (6347)

1997-05-13 17:39:04# 121. lþ. 123.40 fundur 410. mál: #A lögræðislög# (heildarlög) frv., MS (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 123. fundur

[17:39]

Magnús Stefánsson (andsvar):

Herra forseti. Hv. þm. velti fyrir sér rökum varðandi minnkandi atvinnumöguleika þeirra aldurshópa sem hér um ræðir. Ég vil leyfa mér að benda þingmanninum á að nú er Alþingi um það bil að lögfesta frv. um vinnutíma og vinnuvernd barna og unglinga og ég tel að sú lögfesting muni draga úr atvinnumöguleikum þeirra aldurshópa sem hér um ræðir.