Fjárreiður ríkisins

Þriðjudaginn 13. maí 1997, kl. 23:54:55 (6385)

1997-05-13 23:54:55# 121. lþ. 123.48 fundur 100. mál: #A fjárreiður ríkisins# frv., Forseti GÁS
[prenta uppsett í dálka] 123. fundur

[23:54]

Forseti (Guðmundur Árni Stefánsson):

Forseti vill geta þess vegna orðaskipta milli hans og hv. 17. þm. Reykv. um þá ósk hans að hæstv. fjmrh. yrði viðstaddur þessa umræðu, að forseta er kunnugt um að hv. þm. og hæstv. fjmrh. hafa átt símtal saman og orðið ásáttir um að umræðan getur haldið áfram án hans viðveru. Hann á ekki heimangengt þannig að hv. 17. þm. Reykv. heldur áfram ræðu sinni þar sem frá var horfið.