Lánasjóður landbúnaðarins

Miðvikudaginn 14. maí 1997, kl. 10:59:17 (6439)

1997-05-14 10:59:17# 121. lþ. 124.10 fundur 424. mál: #A Lánasjóður landbúnaðarins# frv., ÍGP (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 124. fundur

[10:59]

Ísólfur Gylfi Pálmason (andsvar):

Herra forseti. Ræða hv. þm. var með þeim hætti að hún er vart svaraverð. En ég tek það fram enn og aftur að það eru mismunandi kjör á lánum hér á markaðinum. Hér er um sérstakan sjóð að ræða þar sem er verið að greiða niður þessa vexti. Bændur almennt taka þátt í þeirri niðurgreiðslu og flestir þeirra, ég fullyrði flestir þeirra, eru mjög hlynntir því að viðhalda því kerfi sem verið hefur. Þetta hefur hjálpað mjög mörgum ungum bændum til þess að hefja búskap. Og ég hvet hv. þm. enn og aftur til þess að koma með okkur austur í sveitir til að kynna sér þessi mál betur.