Sérákvæði laga er varða réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins

Miðvikudaginn 14. maí 1997, kl. 13:21:10 (6474)

1997-05-14 13:21:10# 121. lþ. 124.1 fundur 189. mál: #A sérákvæði laga er varða réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins# frv., KÁ (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 124. fundur

[13:21]

Kristín Ástgeirsdóttir:

Hæstv. forseti. Verði þetta frv. að lögum kemst mjög umdeild starfsmannastefna ríkisstjórnarinnar í framkvæmd. Hér er á ferðinni mál sem þarf að skoða miklu betur og ná sátt við samtök opinberra starfsmanna um. Það er því rétt að vísa þessu máli til ríkisstjórnarinnar. En nái sú tillaga ekki fram að ganga munum við sitja hjá við margar greinar en greiða atkvæði gegn einstökum greinum ef við erum mjög ósáttar við innihald þeirra.