Lögræðislög

Miðvikudaginn 14. maí 1997, kl. 14:37:07 (6490)

1997-05-14 14:37:07# 121. lþ. 124.2 fundur 410. mál: #A lögræðislög# (heildarlög) frv., KF (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 124. fundur

[14:37]

Katrín Fjeldsted:

Herra forseti. Þjóðfélag okkar byggir á frelsi einstaklingsins og ég tel mikilvægt að ungt fólk skynji að löggjafi landsins, Alþingi Íslendinga, viðurkenni að það sé fært um að sjá fótum sínum forráð enda sýnir sagan að ungu fólki er treystandi. Ég segi því nei, herra forseti.