Rannveig Guðmundsdóttir:
Virðulegi forseti. Ég styð þessa tillögu og hvet þingmenn til að sameinast um hana. Vegna staðhæfinga sem hafa komið fram í fjölmiðlum vil ég segja þetta: Barnalög og barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna leggja skyldur á foreldra varðandi persónuleg mál barna. Það er mjög mikilvægt að þingmenn geri sér grein fyrir því. Ósjálfráða ungmenni sem lýtur forsjá foreldra fer með forsjá barns síns ef það eignast barn. Foreldri ósjálfráða einstaklings er bundið að vilja hans. Alþjóðasamningar sem við erum bundin af kveða á um 18 ára aldursmörk og ungmenni frá heilbrigðum fjölskyldum skaðast ekki af þessari löggjöf en ungmenni sem þurfa á samfélagslegri hjálp okkar að halda munu njóta þessarar breytingar. Ég segi já.