Ferðir Baldurs yfir Breiðafjörð

Miðvikudaginn 14. maí 1997, kl. 15:31:35 (6503)

1997-05-14 15:31:35# 121. lþ. 125.2 fundur 597. mál: #A ferðir Baldurs yfir Breiðafjörð# fsp. (til munnl.) frá samgrh., samgrh. (svar)
[prenta uppsett í dálka] 125. fundur

[15:31]

Samgönguráðherra (Halldór Blöndal):

Herra forseti. Hv. fyrirspyrjandi gerði góða grein fyrir efni málsins og hef ég ekkert við það að athuga. Það hefur verið samþykkt hjá meiri hluta samgn. að leggja vegáætlun fram til síðari umræðu með þeim hætti að teknar verði upp daglegar ferðir Baldurs yfir vetrarmánuðina og verður snjómokstursreglum breytt í samræmi við það þannig að á næsta vetri verða daglegar ferðir yfir Breiðafjörð.