Samningsveð

Fimmtudaginn 15. maí 1997, kl. 10:25:00 (6556)

1997-05-15 10:25:00# 121. lþ. 127.2 fundur 234. mál: #A samningsveð# frv., KPál (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 127. fundur

[10:25]

Kristján Pálsson:

Herra forseti. Þessi tillaga gengur út á að létta af þeirri réttaróvissu sem ríkt hefur um hvort heimilt sé að veðsetja aflaheimildir með skipi einar og sér eða með skipi. Með tillögunni eru öll tvímæli afdráttarlaust tekin af og veðsetning aflaheimilda bönnuð alfarið einar og sér eða með skipi. Ég segi já.