Samningsveð

Fimmtudaginn 15. maí 1997, kl. 10:29:19 (6560)

1997-05-15 10:29:19# 121. lþ. 127.2 fundur 234. mál: #A samningsveð# frv., KHG (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 127. fundur

[10:29]

Kristinn H. Gunnarsson:

Herra forseti. Í fyrri málsl. 4. mgr. 3. gr. er lagt blátt bann við því að veðsetja aflaheimildir. Það er skýrt og skýlaust í ákvæði greinarinnar. Með þeirri viðbót sem hér er lögð til næst ekki fram nein endurbót á því ákvæði. Það er þegar strangt fyrir og eina hættan sem menn geta tekið með því að bæta þessu við er að draga úr gildi ákvæðisins. Því segi ég nei.