Samningsveð

Fimmtudaginn 15. maí 1997, kl. 10:48:58 (6572)

1997-05-15 10:48:58# 121. lþ. 127.2 fundur 234. mál: #A samningsveð# frv., KPál (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 127. fundur

[10:48]

Kristján Pálsson:

Herra forseti. Með samþykkt þessarar málsgreinar er verið að heimila veðsetningu aflaheimilda með skipi. Þar styðst ég við álit eins virtasta lagaprófessors landsins og virtra lögmanna. Þessi liður mun leiða til gríðarlegrar samþjöppunar aflaheimilda, meiri en við höfum séð til þessa. Viljum við að fáein stórfyrirtæki stjórni því hvort heilu landshlutarnir lifi eða deyi?

Þeir sem greiða þessari málsgrein atkvæði sitt eru vísvitandi og með opin augun að samþykkja veðsetningu aflaheimilda með skipi með þeim afleiðingum sem því fylgir. Það vil ég ekki, ég segi nei.