Samningsveð

Fimmtudaginn 15. maí 1997, kl. 10:49:55 (6573)

1997-05-15 10:49:55# 121. lþ. 127.2 fundur 234. mál: #A samningsveð# frv., LB (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 127. fundur

[10:49]

Lúðvík Bergvinsson:

Virðulegi forseti. Með samþykkt þessa ákvæðis er fjögurra ára þrautagöngu hæstv. dómsmrh. sennilega lokið. Honum hefur lokst tekist að tryggja hagsmuni þeirra sem minna mega sín í samfélaginu, lánastofnana, banka og sjóða. Framsfl. hefur gengið undir í baráttu hans og hjálpað honum að koma þessu í gegn. Ég harma árangur hæstv. dómsmrh. og Framsfl. og segi nei.