Búnaðargjald

Fimmtudaginn 15. maí 1997, kl. 12:17:10 (6587)

1997-05-15 12:17:10# 121. lþ. 127.5 fundur 478. mál: #A búnaðargjald# (heildarlög) frv., HjálmJ (um fundarstjórn)
[prenta uppsett í dálka] 127. fundur

[12:17]

Hjálmar Jónsson (um fundarstjórn):

Herra forseti. Það hefur legið fyrir um hríð eftir að hv. landbn. lauk starfi sínu að hv. þm. Egill Jónsson yrði ekki með okkur í þessu máli. Ég hef hins vegar samþykkt málið með fyrirvara og er með fyrirvara á nefndarálitinu og bíð þess að komast til þess að gera grein fyrir honum í ræðu um málið og tel eðlilegt að málinu verði haldið áfram.