Búnaðargjald

Fimmtudaginn 15. maí 1997, kl. 12:23:42 (6591)

1997-05-15 12:23:42# 121. lþ. 127.5 fundur 478. mál: #A búnaðargjald# (heildarlög) frv., Forseti StB
[prenta uppsett í dálka] 127. fundur

[12:23]

Forseti (Sturla Böðvarsson):

Forseti hefur heyrt ábendingar hv. þingmanna og sér ekki neina sérstaka ástæðu til þess að fresta umræðunni. Allnokkrir eru á mælendaskrá enn þá, m.a. hv. þingmenn sem ekki hafa gert neina athugasemd við áframhaldandi umræður um málið. Forseti lítur því svo á að eðlilegast sé að gefa hv. þingmönnum tækifæri til þess að halda ræður sínar.