Frsm. félmn. (Kristín Ástgeirsdóttir):
Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir brtt. á þskj. 1282 frá félmn. Tillagan gengur út á að breyta gildistíma þessara væntanlegu laga. Í frv. er gert ráð fyrir að lögin öðlist gildi strax en í ljós hefur komið að sú reglugerðasmíði sem þarf að eiga sér stað eftir að þessi lög öðlast gildi er mjög skammt á veg komin og það kann að skapa ákveðinn óróa og miklar fyrirspurnir um útfærslu á lögunum og hvað þau þýða því hér eru nýjungar á ferðinni sem snerta vinnutíma barna og ungmenna. Það hefur orðið að samkomulagi í félmn. að leggja til að gildistökunni verði frestað til 1. okt. 1997 þannig að ráðrúm gefist til að smíða nauðsynlegar reglugerðir.