1997-05-15 16:55:00# 121. lþ. 127.34 fundur 608. mál: #A samningur Sameinuðu þjóðanna gegn ólöglegri verslun með fíkniefni og samningur um þvætti# þál., RG
[prenta uppsett í dálka] 127. fundur

[16:55]

Rannveig Guðmundsdóttir:

Virðulegi forseti. Ég er mjög ánægð ef það reynist svo að búið sé að gera þær breytingar sem samningurinn kallar eftir. Ég treysti því að ef í ljós kemur núna þegar við höfum staðfest hann að frekari lagabreytingar þurfi að gera þá beiti dómsmrh. sér snarlega fyrir því að slík mál komi inn í þingið. Ég er mjög ánægð með að við staðfestum þennan samning og treysti því að stjórnvöld beiti sér fyrir öllum þeim breytingum sem hugsanlega þarf að gera í kjölfarið.