Guðmundur Árni Stefánsson (andsvar):
Herra forseti. Ég er því miður engu nær. Hvernig víkur því við að í haust var hæstv. ráðherra reiðubúinn að leggja fram áætlun til fjögurra ára eins og lög kveða á um, en núna í vor er hann allt í einu að uppgötva að þetta sé allt mjög örðugt og erfitt vegna þess að það sé þensla og þeir hafi ekki verið tilbúnir með útfærslu mála næstu tvö árin? Þeir voru sem sagt tilbúnir í haust en ekki núna í vor. Allt uppleggið var klárt í haust þegar vegáætlun var lögð fram en þegar sól hækkaði á lofti þá allt í einu var þetta allt ómögulegt. Hæstv. ráðherra verður að útskýra þetta betur fyrir mér. Ég fæ engan botn í þetta.