Lánasjóður íslenskra námsmanna

Föstudaginn 16. maí 1997, kl. 12:07:14 (6705)

1997-05-16 12:07:14# 121. lþ. 128.1 fundur 531. mál: #A Lánasjóður íslenskra námsmanna# (endurgreiðsla o.fl.) frv., Frsm. meiri hluta SAÞ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 128. fundur

[12:07]

Frsm. meiri hluta menntmn. (Sigríður A. Þórðardóttir) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil leiðrétta misskilning sem kom fram um skipun stjórnar sjóðsins. Bandalag ísl. sérskólanema á þar einn fulltrúa. Iðnnemasambandið fær nú í fyrsta sinn fulltrúa í stjórninni, ekki í gegnum Bandalag ísl. sérskólanema heldur sem sjálfstæður aðili. Þeir hafa lengi barist fyrir því og er afrakstur þeirrar baráttu kominn í lagafrv. og því ber að fagna.