Álbræðsla á Grundartanga

Föstudaginn 16. maí 1997, kl. 16:22:52 (6725)

1997-05-16 16:22:52# 121. lþ. 128.2 fundur 445. mál: #A álbræðsla á Grundartanga# frv., iðnrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 128. fundur

[16:22]

Iðnaðarráðherra (Finnur Ingólfsson) (andsvar):

Herra forseti. Mér þykir slæmt ef hv. þm. hefur ekki skilið orð mín. En fyrirtækinu hefur verið ljóst frá upphafi hvaða feril starfsleyfið þyrfti að ganga í gegnum og kærufrestur væri eftir þegar umhvrh. hefði gefið út starfsleyfið. Þetta hefur fyrirtækinu verið ljóst þannig að það er enginn ágreiningur milli ríkisins --- stjórnvalda, og fyrirtækisins í þessum efnum.