Álbræðsla á Grundartanga

Föstudaginn 16. maí 1997, kl. 18:22:09 (6738)

1997-05-16 18:22:09# 121. lþ. 128.2 fundur 445. mál: #A álbræðsla á Grundartanga# frv., ÓÞÞ
[prenta uppsett í dálka] 128. fundur

[18:22]

Ólafur Þ. Þórðarson:

Herra forseti. Ég ætla ekki að lengja umræðuna. En óneitanlega hefði ég viljað fá hreint svar við því hvort hv. þm. Hjörleifur Guttormsson hefði í dag greitt atkvæði gegn þeirri tillögu sem hann hvatti þingheim á sínum tíma til að samþykkja. Ég vil fá já eða nei við þeirri spurningu.