Frsm. menntmn. (Sigríður A. Þórðardóttir):
Herra forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti frá menntmn. um till. til þál. um eflingu íþróttastarfs. Tillagan felur í sér að skipuð verði sjö manna nefnd til að gera tillögur um að efla íþróttahreyfinguna og um samskipti ríkisvalds og annarra opinberra aðila við hreyfinguna og stuðning við íþróttastarfið í landinu.
Menntamálanefnd telur mikilvægt að skilningur þjóðarinnar á gildi líkamsræktar og hollra lífshátta verði aukinn og að hvetja eigi landsmenn til iðkunar íþrótta auk þess sem brýnt er að stuðla að eflingu árangurs íslensks afreksfólks á alþjóðavettvangi.
Nefndin mælir með samþykkt tillögunnar. (SvG: Af hverju sjö manna?)