Lánasjóður íslenskra námsmanna

Föstudaginn 16. maí 1997, kl. 22:24:44 (6777)

1997-05-16 22:24:44# 121. lþ. 128.1 fundur 531. mál: #A Lánasjóður íslenskra námsmanna# (endurgreiðsla o.fl.) frv., SJóh (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 128. fundur

[22:24]

Sigríður Jóhannesdóttir:

Hæstv. forseti. Ef þessi tillaga verður samþykkt væru komnar á raunverulegar samtímagreiðslur námslána sem kæmu beint frá lánasjóðnum eins og þær tíðkuðust fyrir lagabreytinguna 1992. Slíkar greiðslur væru mun hagkvæmari fyrir ríkissjóð en sú millifærsluleið vaxtauppbóta sem frv. gerir ráð fyrir. Ég segi já.