Ásta R. Jóhannesdóttir (um atkvæðagreiðslu):
Herra forseti. Þær tvær málsgreinar sem á að fara að greiða atkvæði um eru tillaga heilbr.- og trn. en ekki aðeins tillaga okkar í minni hluta nefndarinnar því að brtt. okkar tekur við af þessum málsgreinum. Ef menn ætla að greiða atkvæði um þessar málsgreinar sér eru þeir á móti brtt. nefndarinnar eins og hún liggur fyrir. Það held ég að sé ekki vilji meiri hlutans. Brtt. okkar gengur lengra og næsti málsliður á eftir er brtt. við brtt. meiri hlutans. (Gripið fram í.) Það verða greidd atkvæði um hana á eftir.