Ásta R. Jóhannesdóttir:
Samkvæmt tillögum meiri hluta nefndarinnar er lagt til að systkini og vinir megi eftir því sem kostur er heimsækja sjúkt barn sem dvelst á heilbrigðisstofnun. Við teljum að það þurfi að ganga lengra í þeim réttindum og leggjum til að greiddur verði ferðakostnaður vegna heimsókna systkina að minnsta kosti einu sinni í mánuði þegar systkini þurfa að fara um langan veg. Þetta þykir sjálfsagt á Norðurlöndunum og við teljum að börn hér eigi að eiga sama rétt til að fá að hitta systkini sín og nánustu fjölskyldu og samfélagið leggi þeim lið til þess.