Samningsveð

Laugardaginn 17. maí 1997, kl. 13:17:01 (6859)

1997-05-17 13:17:01# 121. lþ. 130.11 fundur 234. mál: #A samningsveð# frv., JóhS (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 130. fundur

[13:17]

Jóhanna Sigurðardóttir:

Herra forseti. Með 4. mgr. 3. gr. þessa frv. er verið að heimila veðsetningu á kvóta með skipi. Við jafnaðarmenn höfum á undanförnum árum komið í veg fyrir að hæstv. dómsmrh. hafi getað knúið málið í gegnum þingið sem getur haft mjög alvarlegar afleiðingar. Nú þegar Framsfl. er sestur í ríkisstjórn með Sjálfstfl. þá tekst hæstv. dómsmrh. þetta. Ég segi nei.