Suðurlandsskógar

Laugardaginn 17. maí 1997, kl. 13:40:45 (6869)

1997-05-17 13:40:45# 121. lþ. 130.12 fundur 524. mál: #A Suðurlandsskógar# frv., SvG (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 130. fundur

[13:40]

Svavar Gestsson:

Herra forseti. Ég styð frv. og tel að um sé að ræða mikilsvert efni. Ég harma að óskum okkar um skilyrðislausa beitingu umhverfismats á framkvæmdirnar var hafnað en ég vona engu að síður að málafylgja okkar verði til þess að menn nái áttum og tryggi að umhverfissjónarmiðum verði fylgt í einu og öllu við þær framkvæmdir sem er verið að ákveða.