Forseti Íslands setur þingið

Þriðjudaginn 01. október 1996, kl. 14:29:34 (2)

1996-10-01 14:29:34# 121. lþ. 0.1 fundur 2#B forseti Íslands setur þingið#, Aldursforseti RA
[prenta uppsett í dálka] 0. fundur

[14:29]

Aldursforseti (Ragnar Arnalds):

Ég býð háttvirta alþingismenn velkomna til þingstarfa og læt í ljós þá von að störf þessa þings verði landi og þjóð til heilla.

Fyrir hönd okkar alþingismanna heilsa ég starfsfólki Alþingis og vænti þess að við megum eiga góða samvinnu við það á komandi þingi sem endranær.